Björgvin Guðmundsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins, tilkynnti í dag að hann ætli að hætta sem ritstjóri. Hann og Friðjón R. Friðjónsson ætla eftir áramótin að taka við almannatengslafyrirtæki KOM. Bjarni Ólafsson mun taka tímabundið við ritstjórastarfinu af Björgvini.

Björgvin settist í stól ritstjóra Viðskiptablaðsins í mars árið 2010.