Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, hafnar þeim ásökunum að hann hafi dregið sér fé í starfi sínu sem sveitarstjóri í Ásahreppi. Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu í morgun, en Egill Sigurðsson, oddviti hreppsins, sagði í samtali við blaðið að Björgvin hefði notað greiðslukort frá sveitarfélaginu til persónulegra nota.

„Vegna umræðu um starfslok mín í Ásahreppi skal það tekið fram að ekki var um fjárdrátt að ræða af minni hálfu,“ segir Björgvin í stöðuuppfærslu á Fasbók .

„Við gerð samkomulags um starfslok mín á föstudaginn kom fram að skuld mín við hreppinn nam um einum mánaðarlaunum, að stærstum hluta vegna einnar fyrirframgreiðslu upp á 250 þúsund krónur frá í nóvember í fyrra. Sú greiðsla var rækilega merkt fyrirfram greidd laun til Björgvins og fjarri lagi að tilraun hafi verið gerð til að leyna henni með neinum hætti. Þvert á móti er færslan merkt sem slík í reikningi sveitarfélagsins,“ segir hann jafnframt.

Björgvin segir að aðrar færslur hafi komið fram á nótum og sú stærsta hafi verið kaup á myndavél sem var ætluð til nota fyrir heimasíðu og fleira. Það hafi verið hans mistök að bera ákvörðun um kaup á henni undir yfirmann sinn.

„Það voru mistök og rangt af mér að biðja ekki um heimild frá oddvita vegna fyrirframgreiddra launa og ákvarðana um öll útgjöld. Því biðst ég afsökunar á, enda fór ég þar ekki að reglum um útgjöld, Aldrei stóð annað til að en að þau útgjöld yrðu gerð upp sem laun til mín, likt og merking á fyrirfram launagreiðslunni ber með sér,“ segir Björgvin að lokum.