Björgvin Brynjólfsson hefur verið ráðinn í nýtt starf vefstjóra hjá Eimskip og mun hann fljótlega hefja störf. Björgvin mun hafa umsjón með og ritstýra innri og ytri vefjum fyrirtækisins.

Björgvin er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands með fjölmiðlafræði sem aukagrein en að auki hefur stundað nám við University of Washington í Seattle. Hann hóf störf hjá Eimskip í júlí 2006, sem fulltrúi í tollskjalagerð. Áður starfaði hann sem enskukennari í Tékklandi.

Kristinn Halldórsson hefur verið ráðinn deildarstjóri tjónadeildar Eimskips og hefur hann hafið störf. Kristinn er viðskiptafræðingur að mennt og lauk námi frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst árið 2007. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Verkfræðistofunni Skipasýn ehf, frá árinu 1997.