Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, mun sækjast eftir 1.-2. sæti á lista hjá Framsókn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Í tilkynningu á Facebook talar Björgvin sérstaklega um málefni barna sem ástæðu fyrir framboði.

„Mig langar að taka ábyrgð á því að gæta velferðar barna og annara viðkvæmra hópa í samfélaginu. Að auki þá hafa málefni barna snertiflöt við nánast allan rekstur borgarinnar og mynda einn helsta útgjaldalið sveitarfélagins. Börn eru ekki með kosningarétt og þeim sem stjórna er falið mjög mikilvægt hlutverk sem snýr að velferð barna, skrifar Björgvin Páll.

„Það má gera betur þegar kemur að því að forgangsraða réttindum og velferð barna með sýnilegri stefnumótun og ákvörðunartöku. Það er kominn tími á að við jöfnum leikinn og að allir fái jöfn tækifæri. Íþróttirnar björguðu mér og er það minn draumur að heyra fleiri og fleiri börn segja að skólinn hafi bjargað þeim. Með þeirri ákvörðun að fara í framboð er ég að fylgja hjartanu og minni ástríðu.“

Á fimmtudaginn síðasta viðraði Björgvin Páll hugmyndinni að sækjast eftir að verða næsta borgarstjóri Reykjavíkur. Hann sagðist hafi fengið símtal skömmu eftir Evrópumótið í Ungverjalandi frá þjóðþekktum einstaklingi sem skoraði á hann að bjóða sig fram. Björgvin segir í dag að hann hafi notað orðið „borgarstjóraefni” til að gera fólki grein fyrir þeirri trú sem hann hafi á Framsókn fyrir kosningarnar.

„Ég vil vera hluti af þeirri vegferð, hvort sem það væri að leiða flokkinn eða í öðru sæti á lista. Ég tel að í hvoru sætinu sem er geti ég orðið sá leiðtogi innan kerfisins sem að ég tel að borgin og börnin þurfi á að halda. Börnin okkar eiga að fá hásætið næstu 4 árin og við þurfum öll að taka þátt í að hlúa að þeim.

Hvert þetta mun leiða mig verður að koma í ljós. Ég er allavega ævinlega þakklátur fyrir allan ykkar stuðning hingað til,“ skrifar Björgvin Páll.