Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi og félagsráðgjafi mun gefa kost á sér í 3.-4. sæti í væntanlegu forvali Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir þingkosningarnar á næsta ári.

Björk hefur verið í borgarstjórn í 10 ár. Hún hefur m.a. unnið sem svínahirðir, fangavörður og sjómaður en sem félagsráðgjafi hjá Stígamótum, Kvennaráðgjöfinni og á Kvennadeild Landspítalans. Hún var formaður BHM 1998-2002.

Nái Björk kjöri til Alþingis mun hún að hætta sem borgarfulltrúi til að geta einbeitt sér á nýjum vettvangi.

Björk er gift Sveini Rúnari Haukssyni lækni. Saman eiga þau fimm börn og þrjú barnabörn.