Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, var í dag viðstaddur kjöllagningu nýs og fullkomins varðskips Landhelgisgæslunnar.

Kjöllagningin fór fram við hátíðlega athöfn í Asmar skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile og markaði athöfnin upphafið að eiginlegri smíði skipsins. Skipið verður afhent fullbúið á haustmánuðum 2009 og mun það marka þáttaskil í starfsemi Landhelgisgæslu Íslands, segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Í ferðinni hefur Björn m.a. átt fund með José Goñi Carrasco, varnarmálaráðherra Chile. Jafnframt heimsótti hann höfuðstöðvar landhelgisgæslu Chile og kynnti sér þar rafrænt eftirlits-, skráningar- og tilkynningarkerfi gæslunnar.