Björn Víglundsson framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Iceland Travel, sem er dótturfélag Icelandair og sinnir skipulagningu ferða fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi, hættir störfum samhliða skipulagsbreytingum innan samstöðunnar. Hann tók við starfinu í sumar en var áður framkvæmdastjóri Vodafone miðla hjá félaginu sem nú heitir Sýn, en hætti þar í byrjun síðasta árs .

Staða framkvæmdastjóra Air Iceland Connect verður lögð niður sem og starfsemi félagsins samþætt móðurfélaginu samkvæmt skipulagsbreytingunum.

Árni Gunnarsson sem starfað hefur hjá Air Iceland Connect, sem áður hét Flugfélag Íslands og sinnir innanlandsflugi Icelandair, frá árinu 1999, fyrst sem sölu- og markaðsstjóri, og síðan sem framkvæmdastjóri frá 2005 tekur við framkvæmdastjóri Iceland Travel á næstu vikum. Hann hefur áratugareynslu af stjórnunarstörfum í ferðaþjónustu, bæði á Íslandi og í Þýskalandi, og er með M.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskólanum í Augsburg í Þýskalandi.

Þangað til mun hann þó vinna náið með stjórnendum Icelandair að samþættingu flugfélaganna tveggja, og mun Björn stýra Iceland Travel meðan á þessari vinnu stendur.

Starfsemi félaganna tveggja verður sameinuð, svo sem flugrekstrarsvið, sölu- og markaðsmál, mannauðsmál, fjármálasvið og upplýsingatækni. Félögin verða þó áfram með aðskilin flugrekstrarleyfi og áhafnir Air Iceland Connect verða áfram starfsmenn þess félags.

„Í því ástandi sem nú ríkir erum við að leita allra leiða til hagræðingar í rekstri Icelandair Group og teljum við mikil tækifæri í því að samþætta flugrekstur okkar enn frekar,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

„Um leið og ég þakka Árna Gunnarssyni fyrir mikilvægt framlag við uppbyggingu Air Iceland Connect á síðustu 15 árum, býð ég hann velkominn til starfa á nýjum vettvangi innan félagsins. Á sama tíma vil ég þakka Birni Víglundssyni fyrir mjög gott starf og mikið framlag til Icelandair Group samstæðunnar.“