Björn Brynjúlfur Björnsson hóf á dögunum störf sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands (VÍ). Björn er reyndar öllum hnútum kunnugur þar því hann starfaði sem sérfræðingur VÍ fyrir fáeinum árum. „Ég var þar sem sérfræðingur og tók þátt í málefnastarfinu á þeim helstu sviðum sem Viðskiptaráð fjallar um,“ segir Björn. Nú er hann í því hlutverki að leiða málefna starfið.
Björn lauk BSc. prófi í iðnaðar verkfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og meistaraprófi í fjármálahagfræði frá University of Oxford ári síðar. Björn er 26 ára gamall en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann töluverða starfsreynslu og hefur ferðast víða. Hann var sumarnemandi í Sjanghaí í Kína árið 2009 og skiptinemi í Háskólanum í Miami árið 2010.
Björn Brynjúlfur segist hafa haft mikinn áhuga á því námi sem var í boði í Kína. „Þetta var mjög alþjóðlegt prógramm og þangað komu nemendur alls staðar að úr heiminum til að læra,“ segir hann. „Af sömu ástæðu hef ég búið mikið erlendis. Mér finnst gaman að upplifa aðra menningu og kynnast fólki með ólíkan bakgrunn,“ bætir hann við. Hann segir að það hafi verið gaman að kynnast kínversku samfélagi og núna skilji hann betur stjórnmálin þar og hvernig ákvarðanir þar eru teknar.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér .