Björn Ingi Knútsson.
Björn Ingi Knútsson.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Björn Ingi Knúts­son, fram­kvæmda­stjóri flugrekst­ar­sviðs Wow air, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta staðfestir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, í samtali við Túrista . Hún segir breytinguna gerða í fullri sátt.

Birgir Jónsson, aðstoðarforstjóri Wow air, mun taka við skyldum ábyrgðarmanns flugrekstrarleyfis fyrirtækisins og stöðu framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs. Hann verður áfram aðstoðarforstjóri. Björn Ingi mun starfa áfram hjá fyrirtækinu næstu mánuði og koma ábyrgð og skyldum í hendur Birgis.

Björn Ingi Knútsson hóf störf hjá WOW air í febrúar árið 2013 en sat áður í stjórn fyrirtækisins.