Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi Vefpressunnar, og forsvarsmenn DV hafa gengið frá sameinungu á miðlunum. Þetta kemur fram á fréttavef RÚV . Áformin voru kynnt starfsmönnum DV í hádeginu.

Fyrr í mánuðinum hafði verið greint frá því að viðræður um sameiningu væru hafnar meðal forráðamanna fjölmiðlanna tveggja. Forsvarsmenn DV höfðu þá lýst því yfir að þeir eygðu sameiningu við aðra miðla til að styrkja starfsemi DV.

Mikil ókyrrð hefur verið í kringum DV að undanförnu. Átök hafa verið um eignarhald félagsins og var Reyni Traustasyni, fyrrverandi ritstjóra, vikið frá störfum í kjölfar þess. Hallgrímur Thorsteinsson er nú ritstjóri DV.