Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Pressunar og einn eigenda Vefpressunnar ehf. (sem er félagið utan um rekstur Pressunar) hefur ákveðið að taka sér tímabundið leyfi sem ritstjóri Pressunnar.

Eins og fram kom í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis í morgun nemur skuld félags í eigu Björns Inga, Caramba, við Kaupþing um 560 milljónum króna. Stofnað var til lánanna á meðan Björn Ingi var borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík.

Þá kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar að félag Björns Inga hefði í september gert framvirkan samning um kaup á bréfum í Exista fyrir um 230 milljónir króna. Við það hefðu skuldir félagsins nær tvöfaldast.

„Nú þegar liggur fyrir að Rannsóknarnefnd Alþingis fjallar sérstaklega um viðskipti eignarhaldsfélags okkar hjóna við gamla Kaupþing og vill að yfirvöld skoði þau nánar, tel ég rétt að taka mér tímabundið leyfi sem ritstjóri Pressunnar meðan ég vinn að því að hreinsa nafn mitt af áburði um að hafa þegið það sem kalla mætti óeðlilega fyrirgreiðslu,“ segir Björn Ingi í yfirlýsingu á vef Pressunar.

Steingrímur Sævarr Ólafsson fréttastjóri tekur því við starfi ritstjóri um ótilgreindan tíma.

„Hið rétta í málinu er [...] að hér er ekkert ólöglegt á ferðinni,“ segir Björn Ingi.

„Ég hef aldrei þegið far í einkaþotu af bönkum eða öðrum stórfyrirtækjum, aldrei þegið boð í laxveiði frá fyrirtækjum, á enga erlenda reikninga og hef aldrei tekið stöðu gegn krónunni og þótt fyrirtæki í eigu mín og konu minnar, sem er löggiltur verðbréfamiðlari og sérfræðingur á þessu sviði, hafi átt í hlutabréfaviðskiptum og tekið lán í þeim tilgangi, eins og þúsundir annarra sambærilegra félaga, þýðir það ekki að neitt óeðlilegt hafi verið á ferðinni.“

Þá segir Björn Ingi að hann hafi aldrei fengið krónu afskrifaða í íslensku bankakerfi og stend ekki vel fjárhagslega í dag, frekar en svo fjölmargir aðrir landsmenn.

„Ef ég hefði notið sérstakrar velvildar bankanna og haft sérstakar innherjaupplýsingar, er varla líklegt að félag í minni eigu hefði átt hlutabréf í bankahruninu og jafnvel keypt slíkt bréf. Við hjónin töpuðum öllum okkar sparnaði og miklu meira en það í hruninu,“ segir Björn Ingi.

„Varla bendir það til þess að ég hafi vitað að bankarnir væru á leið í þrot? Ég er að þessu sögðu vitaskuld jafn sannfærður og fyrr um að nafn mitt verði hreinsað og mun vinna að því ásamt mínum lögmanni.“

Sjá yfirlýsingu Björns Inga í heild sinni.