„Þetta er ferli sem lög­in segja til um, við meg­um ekk­ert gera fyrr en græna ljósið er fengið. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að það ger­ist á næst­unni,“ seg­ir Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi og stjórnarformaður Vefpressunnar, í samtali við mbl.is .

Fyrirtækið býður þess enn að Samkeppniseftirlitið veiti samþykki sitt fyrir kaupum þess á tólf blöðum sem Fótspor ehf. gaf áður út. Björn Ingi segir líklegt að ekki sé langt í að leyfi fáist en þangað til sé bara hægt að bíða.

„Það er frek­ar aug­ljóst í þessu til­viki að hvor­ug­ur aðil­inn er með markaðsráðandi stöðu. Útfrá þeim rök­um sýn­ist mér þetta býsna ein­falt en ég ætla líka bara að leyfa emb­ætt­is­mönn­un­um að vinna sína vinnu,“ segir Björn Ingi.

Hann segir að þegar leyfi Samkeppniseftirlitsins liggi fyrir verði aftur hafin útgáfa á blöðunum. „Það verður ekk­ert dregið úr held­ur bara bætt í,“ seg­ir Björn Ingi og bætir því við að ný blöð muni líta dagsins ljós.