Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur, hefur verið settur skrifstofustjóri á nýrri efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins frá 1. nóvember til 31. ágúst 2009.

Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins.

Björn Rúnar hefur áður starfað á Þjóðhagsstofnun, í fjármálaráðuneytinu og nú síðast í greiningardeild Landsbankans.