Krabbameinsfélag Íslands hefur ráðið til sín Björn Teitsson sem nýjan kynningarstjóra félagsins. Björn hefur reynslu af kynningarmálum og miðlun, en hann var m.a. upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi og fréttamaður á Fréttastofu RÚV.

Síðastliðin tvö ár hefur Björn verið í mastersnámi í evrópskum borgarfræðum í Weimar í Þýskalandi. Áður hafði hann lokið BA-gráðu í sagnfræði og þýsku, auk diplómaprófs í menningarfræðum, alþjóðasamskiptum og CPLF-prófs í frönsku.

Björn kemur til með að sinna samskiptum við fjölmiðla og upplýsingagjöf og miðlun fyrir hönd Krabbameinsfélagsins með margvíslegum hætti. Björn hefur nú þegar hafið störf.

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, er ánægð með liðsstyrkinn. „Björn er með fjölbreytta reynslu og menntun sem mun nýtast félaginu vel í komandi verkefnum,“ segir Halla.

„Hann kemur inn í öflugan hóp starfsmanna félagsins, sem vinnur ötullega að markmiðum félagsins, sem eru að fækka nýjum tilfellum krabbameina, að draga úr dauðsföllum af völdum krabbameina og bæta lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra.“

Björn er 39 ára og er í sambúð með Unu Kristínu Jónsdóttur, textíllistakonu. Hann á sér margvísleg áhugamál á borð við matarmenningu og matreiðslu, skipulags-og samgöngumál og alls konar nytsamlegur sem ónytsamlegur fróðleikur um sögu og listir. Skemmitlegast af öllu þykir Birni þó að spila körfubolta eða fara í göngutúra með labrador-hundinum Esju.