Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Björn Þór Hermannsson í embætti skrifstofustjóra skrifstofu opinberra fjármála, tekur ráðningin gildi á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Björn Þór hefur lokið B.Sc. prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu frá sama skóla árið 2010. Hefur Björn Þór starfað fyrir ráðuneytið frá 2011, en áður starfaði hann hjá velferðarráðuneytinu. Björn hefur verið staðgengill skrifstofustjóra frá árinu 2014.