Björn Víglundsson hefur verið ráðinn forstjóri Torgs ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins, DV og Hringbrautar. Hann tekur við starfinu af Jóhönnu Helgu Viðarsdóttur sem hefur gegnt stöðunni í frá því í júlí í fyrra og starfað hjá félaginu frá árinu 2016. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins .

Björn var áður framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Vodafone og nú síðast framkvæmdastjóri Iceland Tracel frá því í júní 2019. Hann er viðskiptafræðingur að mennt frá University of Tampa.