BL hefur tilkynnt að innkalla þurfi 146 Land Rover bifreiðar af árgerðum 2006 til 2012, en greint er frá þessu á vef Neytendastofu .

Þar kemur fram að ástæða innköllunarinnar sé möguleiki á að bremsuslöngur að framan í bifreiðunum gefi sig með þeim afleiðingum að bremsuvökvi fari að leka og bíllinn tapi hemlum að framan. Skipta þurfi um bremsuslöngur báðum megin að framan.

BL mun hafa samband við bifreiðaeigendur vegna innköllunarinnar.