Gestir Bláa lónsins hafa aldrei verið fleiri en árið 2007.  Alls sóttu 407.620 gestir þennan vinsæla áfangastað og er það rúmlega 7% aukning frá árinu á undan.

Umfangsmiklar breytingar og endurbætur voru gerðar á baðstað Bláa lónsins á síðast liðnu ári. Öll búnings- og baðaðstaða var endurhönnuð og Betri stofa þar sem m.a. er boðið upp á einkaklefa var tekin í notkun. Lava, nýr veitingastaður byggður inn í hraunið, hóf einnig starfsemi á árinu. Markmið breytinganna er að auka á upplifun gesta og gera heimsóknina enn ánægjulegri.