Bláa lónið hagnaðist um 23,5 milljónir evra í fyrra eða því sem nemur rúmlega 3,1 milljarði króna miðað við meðalgengi Seðlabanka Íslands. Hagnaðurinn eykst milli ára en í fyrra hagnaðist fyrirtækið um 15,8 milljónir evra. EBITDA félagsins nam 28,2 milljónum evra samanborið við 21,3 milljónir evra árið 2015.

Rekstrartekjur Bláa lónsins í fyrra námu 77,2 milljónum evra í fyrra eða 10,3 milljarðar króna samanborið við 54,3 milljónir árið áður. Rekstrargjöld fyrirtækisins námu hins vegar tæpum, 49 milljónum evra samanborið við 33 milljónir árið áður. EBIDTA félagsins nam 28,2 milljónum króna í fyrra samanborið við 21,3 milljón króna hagnað árið áður. Arðsemi eigin fjár á árinu nam 43,7%.

Eiginfjárhlutfall félagsins var 49% í lok árs 2016. Eignir félagsins voru 109,3 milljónir evra í árslok 2016. Á aðalfundi félagsins var 13 milljón króna arðgreiðsla til hluthafa eða því sem nemur 1,7 milljörðum króna. Handbært fé Bláa lónsins í lok árs nam 20,5 milljónum evra.  Skuldir félagsins í lok árs 2016 námu 55,6 milljónum evra og jukust á milli ára en þær námu 36,3 milljónum evra í árslok 2015.

Unnið að áframhaldandi uppbyggingu

Í tilkynningu frá Bláa lóninu er haft eftir Grími Sæmundsen: „Vöxtur í starfsemi Bláa Lónsins hélt áfram á síðasta ári. Áhersla á fjárfestingar í gæðum og upplifun gesta hefur borið góðan árangur eins og greina má af rekstri félagsins árið 2016. Öflug og virk aðgangsstýring hefur m.a. leikið lykilhlutverk í því efni. Unnið er að áframhaldandi uppbyggingu sem felst í stækkun á upplifunarsvæði Bláa Lónsins og nýju hágæðahóteli, þar sem áherslan verður áfram lögð á einstaka upplifun gesta og mikil þjónstugæði. Nýja upplifunarsvæðið og hótelið munu opna á síðari hluta ársins og verður það mikilvægur áfangi í starfsemi Bláa Lónsins. Nú starfa í kringum 600 manns hjá Bláa Lóninu og ljóst er að þeim mun fjölga umtalsvert við þessi auknu umsvif.“