Bláa Lónið hlaut þrjár viðurkenningar frá Tripadvisor sem er einn vinsælasti ferðavefur heims. Viðurkenningarnar eru fyrir framúrskarandi þjónustu hjá Blue Lagoon Spa, Lava sem er veitingastaður Bláa Lónsins og Bláa Lóninu Lækningalind. Meðlimir Tripadvisor veita þeim stöðum viðurkenningu sem viðhalda hárri einkunn notenda og fá hátt hlutfall góðra umsagna.

Magnea Guðmundsdóttir, kynningarstjóri Bláa Lónsins, segir viðurkenningarnar vera mjög hvetjandi. „Tripadvisor byggir á umsögnum þeirra sem hafa heimsótt okkur og upplifað umhverfi og þjónustu Bláa Lónsins. „ Vefurinn er gífurlega vinsæll. Notendur setja inn bæði umsögn og myndir og deila upplifun sinni með öðrum notendum Tripadvisor.“