Bláa Lónið hf. og Reykjanes Unesco Global Geopark (RGP) hafa ákveðið að taka upp samstarf sem stuðlar að markmiðum Jarðvangsins á Reykjanesi og sveitarfélaganna fjögurra sem eru innan hans.

Til staðfestingar því verður samstarfsyfirlýsing undirrituð í Bláa Lóninu á morgun, þriðjudaginn 16. apríl, klukkan 11:00 að viðstöddum forsvarsmönnum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Jarðvangsins og Bláa Lónsins.

Markmið samstarfsins er  m.a. að styrkja Reykjanesið sem áfangastað, stuðla að sjálfbærri nýtingu, vinna að bestu aðferðum til uppbyggingar í sátt við náttúru, bæta þekkingu, viðhorf og verndarstöðu jarðminja á svæðunum, hvetja til nýjunga í náttúrutengdri sköpun og draga fram og viðhalda menningararfleifð svæðanna.

Í samstarf við síðasta ábúandann

Af þessu tilefni hefur Bláa Lónið stofnað til félags með Grétu Súsönnu Fjeldsted, en hún er eini ábúandinn við Reykjanesvita í dag. Félagið mun meðal annars sjá um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar við Reykjanesvita.

„Auk þess að efla vandaða þjónustuaðstöðu á vestanverðu Reykjanesi, sem lengi hefur skort, munum við aðstoða við merkingar svæðisins. Þá mun starfsmaður frá okkur hafa umsjón með svæðinu í samstarfi við Jarðvanginn,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins.

„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Jarðvanginn og sveitarfélögin öll að fá sterkasta fyrirtæki okkar á Suðurnesjum til þessa mikilvæga samstarfs. Það gefur Jarðvangnum og sveitarfélögunum sem að honum standa byr undir báða vængi m.a. til að stórbæta aðstöðu, draga fram og vernda sérstöðu Reykjaness og vinna að bestu aðferðum til uppbyggingar í sátt við náttúruna“ segir Ásgeir Eiríksson, formaður stjórnar Reykjanes Global Unesco Geopark og bæjarstjóri í Vogum

Um Reykjanes jarðvang

Reykjanes jarðvangur nær yfir allt land sveitarfélaganna Grindavíkurbæjar, Reykjanesbæjar, Sandgerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga. Jarðvangurinn er samstarfsvettvangur sem byggir á því að nýta sérstöðu svæðisins, þ.e. merkilega jarðfræðiarfleið og einstaka jarðsögu, til verðmætasköpunar. Í tilfelli Reykjanes jarðvangs er það Atlantshafshryggurinn, flekaskilin og afleiðingar þeirra.

Lögð er áhersla á að koma sérstöðunni á framfæri með það að markmiði að upplýsa gesti um jarðfræðiarfleiðina ásamt sögu og menningu svæðisins. Um leið er reynt að vekja samfélagið til umhugsunar um þau tækifæri sem felast í nærumhverfinu til að styrkja stoðir fjölbreyttrar atvinnustarfsemi, s.s. ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu o.fl Nánari upplýsingar um jarðvanginn má finna hér.