Blaðamannafundur verður haldinn í Ráðherrabústaðnum kl. 14.15 í dag.

Búast má við að þar verði gerð grein fyrir viðræðunum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Fundað hefur verið stíft í Ráðherrabústaðnum í allan morgun. Um ellefu leytið mætti stjórnarandstaðan og eftir hádegi verður haldinn fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.

Fram kemur í erlendum fjölmiðlum að stjórn IMF hafi fundað í gær.