Bandaríska fjárfestingafélagið Blackstone Group tapaði 93,6 milljónum Bandaríkjadala (um 7,2 milljarðar ísl.króna) á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við 958 milljóna dala hagnað á sama tíma í fyrra.

Tap félagsins er um 6 cent á hvern hlut en hagnaður á hvern hlut í fyrra var 75 cent.

Stephen Schwarzman, forstjóri félagsins sagði þann óróleika sem einkennir fjármálamarkaði um þessar mundir hafa mikil áhrif á gengi hlutabréfa sem lækkað hefðu verulega í verði.