Bandaríska fjárfestingarfélagið Blackstone hefur lýst yfir áhuga á að kaupa hlut í Telecom Italia, sem er særsta fjarskiptafyrirtæki Ítalíu, miðað við markaðshlutdeild. Blackstone er stærsta fjárfestingarfélag heims og hefur einnig lýst yfir áhuga á að kaupa sig inn í orkugeirann á Ítalíu, en orkufyrirtækið Enel segir að engar áætlanir séu uppi um að selja neinar af einingum fyrirtækisins, hvorki á Ítalíu, né erlendis.