Blaðagreinar sem fjalla um markaðsátakið Inspired by Iceland eru yfir 3000 talsins en það er auglýsingapláss upp á 4,2 milljarða króna. Þetta segir Inga Hlín Pálsdóttir hjá Íslandsstofu. Umfjöllun um Ísland hefur því ekki skort, hvorki erlendis né hér innanlands.

Í dag var kynnt ný vetrarherferð sem kallast Share the Secret. Þar voru Íslendingar hvattir til að kynna fyrir erlendum ferðamönnum þeirra leyndarmál á Íslandi. Íslandsstofa stóð fyrir fundi í dag þar sem fjallað var um ferðaþjónustuna og nýja herferðin kynnt.