Innlent 8. september 2014 13:19 Ritstjórn / [email protected]

Blaðamenn DV ráðnir til 365

Tveir blaðamenn hættu á DV fyrir helgi. Þeir eru sagðir hafa verið ráðnir inn á Fréttablað og Vísi.is.
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Blaðamennirnir Viktoría Hermannsdóttir og Aðalsteinn Kjartansson sem sögðu upp sem blaðamenn DV fyrir síðustu helgi hafa verið ráðnir til 365. Viktoría mun starfa á innblaði Fréttablaðsins en Aðalsteinn á Vísi.is, samkvæmt heimildum Kjarnans .

Fram kemur í netritinu í dag að mögulegt sé að fleiri stafsmenn sé á leið frá DV yfir til 365.

Talsvert hefur gengið á hjá DV síðustu daga en í gær var frá því greint að Hallgrímur Thorsteinsson taki við Reyni Traustasyni sem ritstjóri blaðsins.

Aðrar fréttir
Fólk
Skoðun
Eftir vinnu