Frystitogarinn Blængur NK mun halda til veiða í Barentshafi á morgun. Það mun taka skipið um þrjá og hálfan sólarhring að sigla þangað.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra og spurði komandi veiðiferð.

„Það er gert ráð fyrir 34 daga túr og það þýðir að við verðum komnir heim um 25. nóvember. Ráðgert er að veiða  um 600 tonn og við eigum eftir að sjá hvernig það gengur. Síðustu fréttir herma að ekki sé mikið fiskirí á þessum slóðum akkúrat núna en það getur breyst á skömmum tíma. Auðvitað vona allir að það gangi sem best að veiða og við náum aflanum á skemmri tíma en gert er ráð fyrir. Veður hefur mikil áhrif á veiðarnar en það er allra veðra von á þessum slóðum á þessum árstíma. Annars eru menn bara bjartsýnir og vonandi á þetta eftir að ganga vel,“ segir Theodór.