Framtíðarsýn sóttvarnarlæknis, þar sem lagt er til að veitingastaðir, krár og skemmtistaðir loki klukkan 23:00 öll kvöld vikunnar næstu mánuði, er blaut tuska framan í stóran hluta veitingamarkaðarins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) þar sem lýst er yfir áhyggjum af framtíðarsýn sóttvarnarlæknis.

Í tilkynningunni segir að veitingamarkaðurinn hafi meira og minna verið óstarfhæfur frá því að veiran kom fyrst til landsins. „Krár og skemmtistaðir hafa þurft að lúta ströngustu sóttvarnarreglum með tilliti til opnunartíma, gestafjölda, skráningu gesta og grímuskyldu. Á þeim tíma hafa ekki verið færð fyrir því nein rök að fleiri smit hafi komið upp hjá fyrirtækjum á veitingamarkaði en hjá öðrum hópum í samfélaginu."

Þá lýsa samtökin yfir áhyggjum af því að skemmtunin færist einfaldlega annað. Ljóst sé að fólk mun ekki hætta að hittast og skemmta sér sér heldur færa sig í heimahús eða annað húsnæði þar sem ekkert eftirlit er. Þar muni myndast svipuð eða meiri hætta á hópsmiti og nú þegar er fyrir hendi á veitinga- og skemmtistöðum.

Í greininni starfi um 10.000 manns og þar af séu að stórum hluta til ungt fólk sem muni missa vinnu við slíkar aðgerðir. Auk þess geri ófyrirsjáanleikinn, sem blasi við greininni, henni ókleift að fara inni í veturinn.

„Það er algerlega órökstutt hvers vegna þörf sé á svo hörðum aðgerðum sem beinast að veitingamarkaðnum þegar hundruð manna hópast á aðra staði, t.d. á alþjóðaflugvöllinn í Keflavík, á sundstaði, í líkamsræktarstöðvar, verslanamiðstöðvar og á íþróttaleiki.

SVEIT skorar því á sóttvarnalækni að veita haldbær rök, studd gögnum og tölulegum upplýsingum, um nauðsyn þess að skerða afgreiðslutíma veitinga- og skemmtistaða svo verulega með tilheyrandi tjóni fyrir greinina," segir að lokum í tilkynningu SVEIT.