Fjárfestar tóku úrslitunum í Grikklandi vel í dag. Hækkuðu bæði evrópsk og bandarísk hlutabréf framan af degi.

Síðan urðu viðbrögðin blendin í kjölfar frétta að álag á spænsk ríkisskuldabréf hélt áfram að hækka. Álagið á 10 ára bréf endaði í 7,16%, sem er óbærilegt fyrir ríkissjóð landsins til lengdar.

Nasdaq hækkaði um 0,78%, S&P hækkaði um 0,14% og Dow Jones lækkaði um 0,2%.