Tilfinningar evrópskra fjárfesta virðast vera blendnar það sem af er degi; þótt hækkun hafi átt sér stað í helstu kauphöllunum hafa vísitölur lækkað víða, svo sem í Frakklandi, á Spáni og í elstu kauphöll heims, í Amsterdam.

Ekki hafa orðið miklar breytingar enda ekki langt liðið frá opnun en FTSE 100 sem mælir gengi hlutabréfa í kauphöllinni í London hefur hækkað um 0,4% og hið sama á við um þýsku DAX-vísitöluna. Þá hefur FTSE MIB vísitalan í Mílanó sömuleiðis hækkað um 0,4% í dag.