VBS fjárfestingarbanki hf. (VBS) hefur haft milligöngu um kaup á öllum eignarhlutum Blikastaða ehf. og Íslenskra aðalverktaka hf. í landi Blikastaða í Mosfellsbæ. Landið liggur vestan núverandi byggðar í Mosfellsbæ. Meginhluti þess er neðan Vesturlandsvegar og nær að ánni Korpu við bæjarmörk Reykjavíkur. Þá er hluti landsins ofan Vesturlandsvegar, í hlíðum Úlfarsfells. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VBS

VBS hefur þegar gengið frá samkomulagi við Holtasel ehf., móðurfélag Eyktar hf., um framtíðar eignarhald á landinu, frekari þróun svæðisins og uppbyggingu þess.

Fyrir liggur rammaskipulag þar sem gert er ráð fyrir rúmlega 1.800 íbúðum í landi Blikastaða. Auk íbúðarbyggðar eru umtalsverð svæði ætluð undir atvinnustarfsemi, einkum næst mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.  Reiknað er með mikilli eftirspurn eftir lóðum á svæðinu á komandi árum. Fyrirhuguð Sundabraut mun létta umferð af Vesturlandsvegi um það leyti sem áætlað er að uppbygging verði komin í fullan gang á svæðinu.Viðskipti þessi eru þau stærstu  í 10 ára sögu VBS.

VBS tryggði framgang verkefnisins með útvegun fjármagns frá fjárfestum og fjármálafyrirtækjum, auk milligöngu um viðskiptin. Kaupverðið er trúnaðarmál segir í tilkynningunni.