Blóðbankinn fagnar sextíu ára afmæli um þessar mundir og var efnt til afmælishófs í tilefni þess í dag. Blóðbankinn var stofnaður árið 1953 og hóf starfsemi sína við blóðsöfnun, geymslu og afgreiðslu blóðs þann 14. nóvember 1953 í sérhönnuðu húsnæði við Barónstíg í Reykjavík, eftir því sem fram kemur á vef velferðarráðuneytisins. Í maí árið 2007 flutti Blóðbankinn starfsemi sína að Snorrabraut 60, en hafði þá um 20 ára skeið búið við mikil þrengsli og óhagræði í húsnæðismálum.

„Það má örugglega segja að Blóðbankinn sé sá banki hér á landi sem tvímælalaust nýtur trausts og velvildar landsmanna. Blóðbankinn gegnir enda mikilvægu samfélagslegu hlutverki sem er óumdeilt. Þeir sem leggja inn gera það ekki sín vegna heldur í trausti þess að þeir geti með því hjálpað öðrum sem á þurfa að halda. Allir vona að þeir þurfi sjálfir aldrei á úttekt að halda og því má í þessu samhengi segja að sælla er að gefa en þiggja“ sagði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra meðal annars í ávarpi sem hann flutti við þetta tækifæri.