Stjórnendur í viðskiptalífinu fylktu liði og brettu upp ermar í sameiginlegu átaki Samtaka atvinnulífsins og Blóðbanks sem hófst í gær. Átakið er liður í að fjölga blóðgjöfum en Blóðbankinn þarf að fá um 2000 nýja blóðgjafa á ári til að viðhalda blóðgjafahópnum. Blóðgjafarnir eru nú um 9000 talsins og koma þeir um 14000 sinnum á ári.

Með átakinu vilja forstjórar fyrirtækjanna sem komu saman í höfuðstöðvum Marel í gær og gáfu blóð sýna gott fordæmi og hvetja starfsfólk sitt til blóðgjafar á vinnutíma.

Haraldur Guðjónsson, ljósmyndari Viðskiptablaðsins, var á staðnum og tók myndir af viðburðinum.

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Við undirritun samninganna mætti Skúli Eggert Sigurz, framkvæmdastjóri lögfræðistofunnar Lagastoða, en hann þurfti á mikilli blóðgjöf að halda eftir stunguárás á síðasta ári. Þá voru þar jafnframt Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, og Sigsteinn Grétarsson, aðstoðarforstjóri Marel. Lengst til hægri á myndinni við hlið Sigurðar Eggerz standa þeir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Sigsteinn hélt stutta tölu.

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Sveinn Guðmundsson og Vilhjálmur skrifa undir samkomulagið.

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Sigsteinn og Vilhjálmur skrifa undir pappíra um blóðgjöf.

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Sigsteinn stunginn.

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Það fór vel á með þeim félögunum Vilhjálmi og Sigsteini þegar þeir gáfu fyrstu blóðdropana.

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
Átakið Brettum upp ermar - gefum blóð
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)