Bloomberg fréttaveitan hefur ákveðið að birta skuldabréfavísitölur Gam Management (GAMMA) en félagið hóf að birta skuldabréfavísitöluna í nóvember s.l.

Í tilkynningu frá Gamma kemur fram að með birtingu Bloomberg sé ljóst að ekki sé búið að afskrifa Ísland af heimskortinu og mjög jákvætt sé að Bloomberg hafi áhuga á því að birta skuldabréfavísitölur fyrir íslensk ríkisskuldabréf.

„Langflestir erlendir bankar og fjárfestar nota Bloomberg í starfi sínu og eru vísitölurnar kærkomin viðbót þar til að hægt sé að bera saman skuldabréfamarkaði heims,“ segir í tilkynningunni.