Hlutabréf í Bandaríkjunum hækkuðu í viðskiptum dagsins, en meðal jákvæðra tíðinda voru afkomutölur General Motors, sem sýndu minni sölusamdrátt en vænst hafði verið.

Dow Jones hækkaði um 0,3%, S&P 500 um 0,4% og Nasdaq um 0,5%.

Olíuverð hækkaði um tæplega dollar og endaði í 140.97 dollurum á tunnuna.