Hlutabréfamarkaðir lækkuðu í Bandaríkjunum í dag eftir að Tim Geithner, fjármálaráðherra og Ben Bernanke, seðlabankastjóri báru vitni fyrir viðskiptanefnd Bandaríkjaþings þar sem þeir sögðu báðir að hið opinbera þyrfti frekari lagaheimildir til að auðvelda fyrir yfirtöku á bönkum og fjármálastofnunum ef þess gerðist þörf.
Að sögn Bloomberg fréttaveitunnar vakti þetta ugg meðal fjárfesta byrjuðu að reyna að losa sig við eignir strax í kjölfarið.
Nasdaq vísitalan lækkaði um 2,5%, Dow Jones um 1,5% og S&P 500 um 2% en viðmælandi Bloomberg segir að í raun komi á óvart að markaðir skyldu ekki hafa lækkað meira en raun ber vitni.
Eins og gefur að skilja voru það helst bankar og fjármálastofnanir sem leiddu lækkanir dagsins. Þannig lækkuðu bankar á borð við Citigroup, Bank of America, Wells Fargo og JP Morgan á bilinu 3% - 13%.
Í máli þeirra Geithner og Bernanke kom fram að stjórnvöl þyrftu frekari heimildir til að ekki aðeins taka yfir fjármálastofnanir heldur þyrftu auknar heimildir til að snúa við fyrri ákvörðunum stjórna, svo sem samningum um bónusgreiðslur og viljayfirlýsingar um fjárfestingar.
Þetta kemur til vegna þeirrar ákvörðunar stjórnar tryggingarisans AIG, sem yfirvöld vörðu rúmum 180 milljörðum dala í að bjarga frá gjaldþroti í haust, að greiða stjórnendum og millistjórnendum félagsins um 165 milljónir dala í bónusgreiðslur en sem kunnugt er hefur sú ákvörðun, þó lögleg sé, vakið upp mikla reiði vestanhafs.
Þá telur viðmælandi Bloomberg að þeir Geithner og Bernanke sjái fyrir að þurfa að taka yfir fleiri félög á næstunni og því sé farið fram á auknar heimildir nú.
Hráolíuverð lækkaði lítillega í dag en við lok markaða í New York kostaði tunnan af hráolíu 53,5 dali og hafði þá lækkað um 0,1% frá opnun markaða.