Norðurþing hefur boðað til borgarafundar um verkefnið Framsækið samfélag með álver á  Bakka, á morgun, fimmtudaginn 3. apríl, kl. 20:00-22:00 á Fosshóteli, Ketilsbraut 22 á Húsavík. Á fundunum munu fulltrúar Norðurþings, Alcoa, HRV, Landsvirkjunar og Landsnets kynna undirbúning og stöðu þessa mikilvæga verkefnis og svara fyrirspurnum.

Einnig verður efnt til morgunverðarfundar um verkefnið í Alþýðuhúsinu á Akureyri við Skipagötu 14. á 4. hæð, föstudaginn 4. apríl kl. 8:30-10:00.

Sveitarfélagið Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra sveitarfélaga; Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps, árið 2006. Þéttbýliskjarnarnir í nýja sveitarfélaginu eru Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn.