Fulltrúar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna bjuggust ekki við að Árni Mathiesen fjármálaráðherra boðaði fagnaðarerindi af neinu tagi í ræðu sinni í dag en myndin sem hann dró upp af ástandinu var greinilega enn svartari en margir höfðu búist við að sjá segir í frétt frá sabnadinu.

Á fundinum kom fram að Árni áætlaði að heildartekjur ríkissjóðs myndu dragast saman um fjórðung árið 2009, miðað við samsvarandi tölur í ár. Þar vegur þyngst að stofnar tekjuskatts og fjármagnstekna rýrna um meira en helming og allir skattstofnar dragast saman.

Ráðherrann boðaði að reglubundin framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga myndu dragast saman um að minnsta kosti 10% og að „tímabundin framlög“ ríkisins til Jöfnunarsjóðins myndu ekki halda áfram. Í fjárlagavinnunni yrði miðað við að skera enn meira niður frekar en auka útgjöld.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og aðrir fundarmenn skildu orð ráðherrans á þann veg að ekki yrði framhald á 1,4 milljarða króna viðbótarframlagi ríkisins í Jöfnunarsjóðinn þó ekki væri sagt berum orðum. Á fundinum var lagt hart að ráðherranum að halda þessu viðbótarframlagi inni, enda væri um líf eða dauða að tefla fyrir sveitarfélög sem væru orðin „algjörlega háð framlaginu.“

Fjármálaráðherra kvaðst í lok fundar skynja þessi skýru skilaboð til sín og myndi fara vel yfir málið sínum ranni en lofaði engu um niðurstöðuna áður en hann hvarf á braut.