Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur boðað Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, til fundar við sig á Bessastöðum klukkan hálf tólf. Ólafur fundaði í gær með Sigmundi Davíð og formönnum allra þeirra flokka sem náðu á þing í gær.

Sigmundur sagði í gær engar stjórnarmyndunarviðræður hafa átt sér stað, hvorki formlegar né óformlegar en vildi bíða eftir því að forsetinn tæki af skarið með það hvaða formaður muni leiða stjórnarmyndunarviðræður.