Samninganefnd Eflingar samþykkti rétt í þessu að boða til kosningar um vinnustöðvun félagsmanna við þrif og hreingerningar á veitinga- og gistihúsum frá morgni til kvölds föstudaginn 8. mars næstkomandi. Þetta kemur fram í tölvupósti til félagsmanna.

Sem kunnugt er var viðræðum í kjaradeildu Eflingar, VR, Verkalýðsfélags Akraness (VLFA) og Verkalýðsfélags Grindavíkur við Samtök atvinnulífsins slitið fyrr í dag . Samninganefnd Eflingar hittist í kjölfarið nú í kvöld og ákvað að boða til kosningar um verkfallsaðgerðir.

Samþykkt var að láta fara fram „almenna leynilega rafræna allsherjaratkvæðagreiðslu“ um boðun vinnustöðvunar meðal ofangreindra starfsmanna, sem taki til „allra þrifa, hreingerninga og frágangs herbergja og annarrar gistiaðstöðu, þar með talið á göngum, salernum og í sameiginlegu rými“.

Vinnustöðvunin myndi ná til allra hótela, veitinga- og gistihúsa á stórum hluta suðvesturhornsins, nánar tiltekið í umdæmi Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Seltjarnarness, Mosfellsbæjar og Kjósarsýslu að Botnsá, Grímsness og Grafningshrepps, Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfus, og vara frá 10:00 að morgni til miðnættis.

Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 10 að morgni næstkomandi mánudags, og lýkur klukkan 10 að kvöldi fimmtudaginn þar á eftir.

Pósturinn í heild:

Kæri félagi

Fundur samninganefndar Eflingar-stéttarfélags haldinn í kvöld 21. febrúar 2019 samþykkti að láta fara fram almenna leynilega rafræna allsherjaratkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar meðal þeirra félagsmanna Eflingar sem vinna skv. kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og Eflingar – stéttarfélags og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis vegna vinnu starfsfólks í veitinga- og gistihúsum og hliðstæðri starfsemi sem rann út þann 31.desember 2018.

Vinnustöðvunin ef samþykkt verður, mun taka til allra þrifa, hreingerninga og frágangs herbergja og annarrar gistiaðstöðu þ.m.t. á göngum, salernum og í sameiginlegu rými, á öllum hótelum og gistihúsum á því félagssvæði Eflingar sem tekur til starfa á veitinga- og gistihúsum sem er lögsagnar umdæmi Reykjavíkur, Kópavogs, Seltjarnarness, Mosfellsbæjar og Kjósarsýslu að Botnsá, Grímsnes og Grafningshrepps, Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfus auk Hafnarfjarðar og Garðabæjar.

Lagt er til að vinnustöðvun ofangreindra félagsmanna verði tímabundin og hefjist klukkan 10:00 að morgni 8. mars 2019 og ljúki klukkan 23:59 þann 8. mars 2019 nema kjarasamningar hafi tekist fyrir þann tíma.

Atkvæðagreiðslan hefst kl. 10 að morgni 25.2 2019 og lýkur kl.22:00, fimmtudaginn 28.2 2019.

Samninganefnd Eflingar-stéttarfélags