Boðað hefur verið til hluthafafundar í Högum föstudaginn 18. janúar þar sem kjósa á nýja stjórn félagsins.

Samherji óskaði eftir hluthafafundinum og stjórnarkjöri þann 7. desember. Sjávarútvegsfyrirtækið varð einn stærsti hluthafi Haga við kaup félagsins á Olís.

Frestur til að bjóða sig fram í stjórn Haga er til 4. janúar en tilnefningarnefnd Haga mun leggja fram tillögur sínar þann 11. janúar, en þá á endanleg dagskrá fundarins einnig að liggja fyrir.