Búast má við að fleiri stórverslanir á vegum verslunarkeðjunnar House of Fraser muni loka á árinu 2020. Þetta segir Mike Ashley, forstjóri Sports Direct, en félagið keypti rekstur House of Fraser á síðasta ári. Á sama tíma var ákveðið að loka nokkrum verslunum. BBC greinir frá þessu.

Að sögn Ashley er rekstur sumra verslana House of Fraser ósjálfbær, en að unnið sé að því að bjarga eins mörgum verslunum og störfum og möguleiki er á.

Hluthafar Sports Direct samþykktu í gær tillögu um að breyta nafni móðurfélagsins í Fraser Group.