Háskólinn í Reykjavík mun bjóða upp á nýjar námsbrautir og fleiri tækifæri fyrir umsækjendur í iðn- og tæknifræðideild í haust. Meðal annars hefst kennsla í rekstrarfræði sem er hagnýtt rekstrar- og viðskiptanám sem er sérstaklega sniðið að einstaklingum á vinnumarkaði.

Einnig hefst kennsla á nýrri braut sem ber heitið upplýsingatækni í mannvirkjagerð, auk þess sem þau sem lokið hafa námi í iðnfræði eiga nú möguleika á að fá hluta námsins metinn í nám í tæknifræði við deildina.

„Nýja námið í rekstrarfræði miðar að því að auka færni þeirra sem vilja koma að rekstri og stjórnun, þeirra sem eru í fyrirtækjarekstri eða hyggjast fara út í rekstur,“ segir Hera Grímsdóttir, forseti iðn- og tæknifræðideildar HR.

„Diplómanám í rekstrarfræði er stutt og hagnýtt rekstrar- og viðskiptanám, sérstaklega sniðið að einstaklingum á vinnumarkaði. Námið er byggt á gömlum grunni rekstrariðnfræði, sem var aðeins fyrir iðnfræðinga, en hefur nú verið opnað fyrir fleirum en aðeins þeim sem eru með diplómagráðu í iðnfræði.“

Að sögn Heru hljóta nemendur í diplómanáminu almenna þekkingu og skilning á undirstöðuatriðum í fjármálum fyrirtækja, hagfræði, fjármálastjórn, rekstrargreiningu, nýsköpun og stofnun fyrirtækja og mannauðsstjórnun.

Lögð er megináhersla á að nemendur vinni hagnýt, raunhæf verkefni sem byggja á þekkingu kennara úr atvinnulífinu og auka hæfni nemenda á þessum sviðum. Námið í rekstrarfræði er þrjár annir, og kennt er í fjarnámi með staðarlotum sem gerir nemendum kleift að stunda námið samhliða vinnu.

„Háskólinn í Reykjavík er einnig að auka tækifærin fyrir umsækjendur í iðn- og tæknifræði með ýmsum öðrum hætti. Við munum bjóða upp á stöðupróf í stærðfræði og eðlisfræði inn í tæknifræðinám til að koma til móts við umsækjendur sem uppfylla ekki formleg inntökuskilyrði,“ segir Hera.

„Stöðuprófin eru ætluð fyrir þau sem telja sig hafa nægilegan grunn án þess að hafa lokið tilskyldum framhaldsskólaeiningum og þau sem vilja rifja upp námsefnið og sjá hvar þau standa áður en nám hefst. Fyrstu prófin verða haldin í sumar og nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningu í þau. Einnig eru nú ákveðin námskeið í iðnfræði metin inn í nám í tæknifræði við HR. Iðnfræðingar sem hafa útskrifast með lokapróf úr Háskólagrunni geta nú fengið metnar allt að 41 ECTS einingu úr iðnfræði inn í tæknifræði.“