Sala flugvéla hjá Boeing jókst mikið síðustu þrjár mánuði síðasta árs og jókst hagnaðurinn í fyrra um 21%. Hagnaður Boeing í fyrra var fjórir milljarðar Bandaríkjadala. Sala venjulegra flugvéla á síðasta ársfjórðungi jókst um 31% í tæplega 11 milljarða Bandaríkjadala og sala herflugvéla jókst um 4% og var um 8,5 milljarðar Bandaríkjadala. Þetta kemur fram í Wall Street Journal.

Tekjur 2011 námu 69 milljörðum króna og spár Boeing gera ráð fyrir auknum tekjum á þessu ári eða á bilinum 78 til 80 milljarðar Bandaríkjadala.