Boeing hefur samið við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna um að greiða 2,5 milljarða dala, ígildi 316 milljarða króna, í sekt fyrir að hafa leynt upplýsingum um hönnun 737 MAX flugvélarinnar frá yfirvöldum. BBC segir frá .

Ráðuneytið sakaði flugvélaframleiðandann um að hafa valið „hagnað framyfir hreinskilni“ með því að leyna upplýsingum um breytingar sem gerðar voru á sjálfvirku flugstjórnarkerfi vélanna, sem taldar eru eiga sök á tveimur mannskæðum slysum fyrir tveimur árum síðan. Með því hafi félagið hamlað eftirlitshlutverki yfirvalda gagnvart vélunum.

Því hafi þjálfunarleiðbeiningar vélanna skort upplýsingar um kerfið, sem tók í ákveðnum aðstæðum stjórnina frá flugmönnum byggt á röngum upplýsingum, með þeim afleiðingum að þær steyptu sér niður á við.

Um fimmtungur sektarupphæðarinnar mun renna til aðstandenda þeirra 346 sem létust í slysunum.

Haft er eftir framkvæmdastjóra Boeing, David Calhoun, að hann „trúi því staðfastlega að þessi samningur sé það rétta í stöðunni fyrir fyrirtækið, þannig gangist það við því hvernig það hafi brugðist gildum sínum og væntingum til sín“.