Vinsælasta bók síðasta árs í Bókaverslun Eymundssonar er bókin Iceland Small World eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Þetta er annað árið í röð sem þessi bók, sem er ljósmyndabók, er vinsælasta bókin.

Maður sem heitir Ove, eftir Fredrick Bakman, er í öðru sæti. Skuggasund, eftir Arnald Indriðason, sem kom út fyrir jólin er svo í þriðja sæti. Lágkolvetna lífstíllinn, eftir Gunnar Má Sigfússon, lenti í fjórða sætinu. Í fimmta sæti er svo Lygi, skáldsaga eftir Yrsu Sigurðardóttur.