Bonafide lögmenn munu opna nýja starfsstöð í Vestmannaeyjum þann 8. maí næstkomandi sem mun hafa aðsetur að Vesturvegi 10, en stofnendur stofunnar, þeir Lúðvík Bergvinsson og Sigurvin Ólafsson, eru báðir Vestmanneyingar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Við erum hæstánægð með að vera loksins að opna í Vestmannaeyjum, og hlökkum við Sigurvin mikið til að starfa á ný í okkar heimabæ. Með opnuninni í Eyjum skapast einnig ný staða fyrir háskólamenntaðan mann í sveitarfélaginu, sem okkur þykir einnig jákvæð viðbót,“ segir Lúðvík.

Við stofuna mun starfa einn staðbundinn starfsmaður, Aníta Óðinsdóttir, en allir starfsmenn stofunnar í Reykjavík koma einnig að störfum þar. Aníta útskrifaðist með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013. Hún er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, og hefur frá útskrift starfað hjá Sýslumanninum í Kópavogi og Vestmannaeyjum, við almenn störf á lögfræðisviði.