Greiningardeildir Glitnis, Kaupþings og Landsbanka spá íslensku bönkunum að meðaltali rúmlega 40 milljarða króna hagnaði samanlagt á fyrsta fjórðungi þessa árs.

Samanlagður hagnaður fyrirtækjanna nam 45 milljörðum króna á sama tímabili ársins 2007, þannig að ef spár deildanna rættust yrði um 11% samdrátt að ræða á milli ára.