Bæjarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að úthluta Þyrpingu hf. lóðinni við Digranesgötu 6 í Borgarnesi en lóðin stendur á nýju uppfyllingunni við Brúartorg. Þyrping ætlar að byggja þar nýtt húsnæði fyrir verslun Bónuss í Borgarnesi og er ætlunin að húsið verði tilbúið næsta vor segir í frétt á fréttavef Skessuhornsins.