Hagar hf. undirrituðu í síðasta mánuði kaupsamning um hluta fasteignarinnar að Skipholti 11-13. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung. Fasteignin sem Hagar keyptu er tæplega 1.000 fermetrar og stefnir félagið að því að opna Bónus-verslun þar á árinu.

Í nóvember opnaði alþjóðlega tískuvörukeðjan F&F í verslun Hagkaups á 2. hæð í Kringlunni. Í tilkynningu með uppgjörinu segir að móttökurnar hafi verið góðar og reksturinn gengið vel. Á nýju ári muni F&F opna í fleiri verslunum Hagkaups en áætlað er að sú næsta opni í Garðabæ í mars.